Spölur - Hvalfjarðargöng

Forsíða Fréttir

Fréttir

Vel yfir 8.000 bílar á sólarhring í júlí

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

Umferðin í Hvalfjarðargöngum var 4,1% meiri í júlí en í sama mánuði 2008. Um göngin fóru að jafnaði 8.019 bílar á sólarhring og það hefur ekki gerst fyrr, frá því göngin voru opnuð, að umferðin nái 8.000 bílum á sólarhring í einum mánuði.

 

Lesa meira...
 

Meiri umferð en í fyrra

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

Umferðartölur það sem af er sumri benda eindregið til þess að landsmenn ferðist nú meira um eigið land en áður.  Meðaltalsumferðin í Hvalfjarðargöngum júlímánuði hefur verið yfir 8.100 bílar á sólarhring að jafnaði, sem er umtalsvert meira en á sama tíma í fyrra.

Lesa meira...
 

Hér skall hurð nærri hælum

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

Árekstur í göngunum

Mikil mildi var að ekki fór verr í göngunum þegar lítill fólksbíll fór yfir á rangan vegarhelming og lenti framan á flutningabíl sem kom úr gagnstæðri átt. Þetta átti sér stað um þrjúleytið í gær, 6. júlí, um 150 metrum inni í göngunum norðanverðum.

Lesa meira...
 

Umferðaraukning í júní

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

Umferðin í Hvalfjarðargöngum jókst um 3,8% í júnímánuði frá sama mánuði í fyrra. Aukningin var svipuð og í apríl miðað við sama mánuð 2008. Þegar á heildina er litið hefur umferðin dregist saman á níu fyrstu mánuðum rekstrarárs Spalar. Samdrátturinn nemur alls um 40.000 bílum á tímabilinu eða 146 bílum á sólarhring að jafnaði. Alls fóru að jafnaði 5.700 bílar um göngin í maíí ár og tæplega 7.100 á sólarhing í nýliðnum júnímánuði.

Umferð

Okt 2008

Nóv

Des

Jan 2009

Febr

Mars

2007/2008

160.072

146.624

130.650

124.188

125.777

155.842

2008/2009

143.563

137.634

127.985

125.797

122.668

134.024

Breyting

-10,31%

-6,13%

-2,04%

1,30%

-2,47%

-14,00%

 

Umferð

Apríl

Maí

Júní

Júlí

Ágúst

Sept

2007/2008

154.619

178.186

204.407

2008/2009

160.537

175.599

212.200

Breyting

3,83%

-1,45%

3,81%

 

Meiri umferð í apríl, heldur minni í maí

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

Umferðin í Hvalfjarðargöngum er í heildina minni það sem af er rekstrarári Spalar en á sama tíma í fyrra en sveiflurnar eru umtalsverðar á köflum frá mánuði til mánaðar. Þannig var samdrátturinn 14% í mars miðað við sama mánuð 2008 en í apríl var aukningin hins vegar hátt í 4%. Í maí var örlítill samdráttur, upp á 1,45%.

Rekstrarár Spalar eru frá októberbyrjun til septemberloka. Hér fyrir  neðan eru tölurnar um fjölda ökutækja í hverjum mánuði yfirstandandi rekstrarárs og fyrra rekstrarárs og svo hlutfallslega breytingu frá fyrra ári.

 

Umferð 

 Okt

 Nóv

 Des

 Jan

Febr 

Mars 

 Apríl

 Maí

 2007/2008

 160.072

 146.624

 130.650

 124.188

 125.777

 155.842

 154.619

 178.186

 2008/2009

 143.563

 137.634

 127.985

 125.797

 122.668

 134.024

 160.537

 175.599

 Breyting

-10,31% 

-6,13% 

-2,04% 

1,30% 

 -2,47%

-14,00% 

3,83% 

-1,45% 

 

Spölur í hópi fyrirmyndafyrirtækja VR 2009

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

Fyrirmyndarfyrirtæki VR 2009Spölur er í hópi fyrirmyndafyrirtækja VR í ár og hafnaði í 16. sæti af alls 233 fyrirtækjum sem tekin voru með í könnun stéttarfélagsins í flokki minni fyrirtækja.  Microsoft á Íslandi er fyrirtæki ársins í flokki minni fyrirtækja með 4,870 í heildareinkunn, Spölur fékk 4,571 í heildareinkunn. 

Spölur er ásamt Bílaleigu Flugleiða, Alp og Hreyfli í hópi samgöngufyrirtækja á sjó og landi í könnuninni og  er með langbesta útkomuna þar.


Yfir 20 þúsund félagsmenn VR í fyrirtækjum á almennum markaði fengu spurningalista í vetur og svöruðu spurningum um trúverðugleika stjórnenda, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleika í vinnu, sjálfstæði í starfi, ánægju og stolt, ímynd fyrirtækisins og  starfsanda. Svarhlutfall starfsmanna Spalar var 100%

Gefinn var einkunn fyrir hvert svar hópsins og síðan heildareinkunn. Starfsmenn Spalar gáfu félaginu hámarkseinkunn, fimm,  þegar spurt var um ánægju og stolt. Félagið skoraði líka hátt þegar spurt var um starfsanda og sjálfstæði í starfi. Lægsta einkunn gáfu starfsmennirnir félaginu hins vegar fyrir sveigjanleika í starfi, 3,82. Meðaleinkunn fyrir hin svörin var  frá 4,02 upp í 5,0.


Tuttugu fyrirtæki í hvorum flokki  flagga nú nafnbótinni fyrirmyndarfyrirtæki 2009 fyrir frábæran árangur. Þar á meðal er sem sagt Spölur í flokki minni fyrirtækja.

 

  •  Meira um könnun VR og fyrirmyndarfyrirtækin 2009 á heimasíðu VR

 

 

Meiri umferð í janúar en í sama mánuði í fyrra

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

Núna í janúar fóru 125.359 ökutæki um Hvalfjarðargöng eða 1.200 fleiri en í sama mánuði 2008. Þetta er aukning um 0,9% og kemur nokkuð á óvart í efnahagslega árferðinu sem þjóðin býr við.

Nærtækt væri að ætla að umferðin í janúar 2008 hefði verið óvenju lítil sem skekkti þennan samanburð en svo er ekki. Umferðin í janúar 2008 var tæplega 2% meiri en í janúar 2007. Þar var því áfram stígandi í tölum frá mánuði til mánaðar, allt til loka fyrsta ársfjórðungs 2008.

Í apríl 2008 mældust fyrst umskipti í íslensku efnahagslífi í umferðartölum Hvalfjarðarganga. Þá fóru færri um göngin en í sama mánuði árið á undan og sama gerðist alla mánuði sem eftir lifðu af árinu 2008.

Í janúar 2009 bregður hins vegar svo við að aukning mælist á nýjan leik og nú verður fróðlegt að sjá hvað febrúar ber í skauti sér að þessu leyti.

 
 

Hraðast ekið á fimmtudegi

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

Ökumenn aka hraðast í Hvalfjarðargöngum á fimmtudögum, föstudögum og sunnudögum en halda bensínfætinum betur í skefjum aðra daga vikunnar. Þá ályktun má draga af afar fróðlegum upplýsingum sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur dregið saman eftir hraðamælingar í eina viku núna í janúar, frá fimmtudegi 22. janúar til fimmtudags 29. janúar.

Vöktuð var umferð á norðurleið og þá leið fóru 13.582 ökutæki á tímabilinu. Einn af hundraði ökumanna fór yfir strikið og braut gegn ákvæðum laga um hámarkshraða eða alls 155 ökumenn. Meðalhraði þeirra brotlegu var 83,6 km/klst.

  • Ellefu ökumenn mædust á 90 km hraða eða meira. Þeirra bíður að greiða sekt upp á 15.000-40.000 króna sekt.
  •  

  • Fjórir voru á 100 km hraða eða meira. Þeirra bíður sekt upp á 40.000-50.000 og einn til tveir refsipunktar í ökuferilsskrá.
  •  

  • Einn var á 113 km hraða og sá á yfir höfði sér 60.000 króna sekt og þrjá punkta í ökuferilsskrá. 
  •  

     

     

     

     

     

    Lítill samdráttur í desember

    Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

    Umferð í Hvalfjarðargöngum var 2,7% minni í desember 2008 en í sama mánuði árið þar á undan. Samdrátturinn var umtalsvert meiri í október og nóvember en í jólamánuðinum miðað við sama tímabil 2007.

    Lesa meira...
     

    15 milljónir ökutækja undir Hvalfjörð frá upphafi

    Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út
    Alls hafa um 15 milljónir ökutækja farið um Hvalfjarðargöng á tíu árum eða frá því þau voru opnuð sumarið 1998. Umferðin jókst jafnt og þétt ár frá ári en í efnahagsþrengingunum nú fækkar bílum á þjóðvegum landsins og þar með í göngunum.
    Lesa meira...
     
    JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL