Lögreglan stóð ökumann að því aka á 134 km hraða á norðurleið í göngunum í nýliðinni viku. Viðurlög við slíku háttarlagi eru svipting ökuleyfis í tvo mánuði, 110.000 króna sekt og þrír refsipunktar í ökuferilsskrá.
Glæpsamlegt ökulag í þessum dúr heyrir sem betur fer til undantekninga þarna en ætti auðvitað alls ekki að þekkjast.
Lögreglan vakaði hraðamyndavélar sínar frá því mánudaginn 1. mars til dagsins í dag, 8. mars. Alls var hraði 15.141 ökutækis mældur og af þeim töldust 134 aka hraðar en lög leyfa eða 0,9%. Meðalhraði hinna brotlegu var ríflega 85 km/klst. Átján bílum var ekið á 90 km hraða eða meira og fjórum á 100 km hraða eða meira.



