Umferðin í Hvalfjarðargöngum dróst saman um innan við 2% á rekstrarári Spalar, frá októberbyrjun 2008 til septemberloka 2009. Mesta athygli vekur hve samdrátturinn er miklu meiri á fyrri hluta rekstrarársins en á þeim síðari.
Þegar á heildina er litið fóru um 36.000 færri bílar um göngin á nýliðnu rekstrarári en á rekstrarárinu þar á undan, sem er samdráttur um nákvæmlega 1,83%. Þetta er minni samdráttur en hefði mátt ætla að yrði þegar fyrstu umferðartölur eftir hrunið mikla lágu fyrir í fyrra.
Á tímabilinu október-mars fækkaði bílum á ferð undi rHvalfjörð um 51.000 frá sama tíma rekstrarárið 2007/2008 en þeim fjölgaði hins vegar um hátt í 15.000 á tímabilinu apríl-september miðað við sama tíma í fyrra.
Októbermánaðar 2008 verður að sjálfsögðu lengi minnst vegna bankahrunsins og engum kom á óvart að umferðin í Hvalfjarðargöngum minnkaði þá um 10,3% miðað við sama mánuð 2007. Samdráttur mældist líka í nóvember og desember en örlítil aukning hins vegar í janúar. Í febrúar var samdráttur og í mars dróst umferðin saman um heil 14%. Efnahagskreppan skýrir þá sveiflu hins vegar aðeins að hluta til, skýringin er öllu frekar sú að páskarnir voru í apríl í ár en í mars árið 2008. Páskaumferðin var þannig ekki skráð í sömu mánuðum 2008 og 2009 sem skekkir samanburð á umferð í mars og apríl.
Á síðari helmingi rekstrarársins dróst umferð saman í maí, ágúst og september en jókst hins vegar í apríl, júní og júlí miðað við sömu mánuði 2008.
|
Umferð |
Okt 2008 |
Nóv |
Des |
Jan 2009 |
Febr |
Mars |
|
2007/2008 |
160.072 |
146.624 |
130.650 |
124.188 |
125.777 |
155.842 |
|
2008/2009 |
143.563 |
137.634 |
127.985 |
125.797 |
122.668 |
134.024 |
|
Breyting |
-10,31% |
-6,13% |
-2,04 |
+1,30% |
-2,47% |
-14,00% |
|
Umferð |
Apríl |
Maí |
Júní |
Júlí |
Ágúst |
Sept |
Alls |
|
2007/2008 |
154.619 |
178.186 |
204.407 |
238.715 | 223.700 | 164.209 | 2.006.090 |
|
2008/2009 |
160.537 |
176.332 |
213.052 |
248.975 | 218.184 |
161.466 | 1.970.217 |
|
Breyting |
+3,83% |
-1,04% |
+4,23% |
+4,30% | -2,47% |
-1,67% | -1,87% |



