Núna í janúar fóru 125.359 ökutæki um Hvalfjarðargöng eða 1.200 fleiri en í sama mánuði 2008. Þetta er aukning um 0,9% og kemur nokkuð á óvart í efnahagslega árferðinu sem þjóðin býr við.
Nærtækt væri að ætla að umferðin í janúar 2008 hefði verið óvenju lítil sem skekkti þennan samanburð en svo er ekki. Umferðin í janúar 2008 var tæplega 2% meiri en í janúar 2007. Þar var því áfram stígandi í tölum frá mánuði til mánaðar, allt til loka fyrsta ársfjórðungs 2008.
Í apríl 2008 mældust fyrst umskipti í íslensku efnahagslífi í umferðartölum Hvalfjarðarganga. Þá fóru færri um göngin en í sama mánuði árið á undan og sama gerðist alla mánuði sem eftir lifðu af árinu 2008.
Í janúar 2009 bregður hins vegar svo við að aukning mælist á nýjan leik og nú verður fróðlegt að sjá hvað febrúar ber í skauti sér að þessu leyti.



