Hvalfjarðargöng verða lokuð næstu þrjár nætur vegna hefðbundins viðhalds en einkum vegna þess að fjölga á ljósum yfir akbrautum. Lokað verður aðfararnætur þriðjudags, miðvikudags og fimmtudags 14., 15. og 16. október frá miðnætti til kl. 6 að morgni.
Sett verða upp 70 ljós í suðurhluta ganganna í þessum áfanga og gert er síðan ráð fyrir að 70 ljós til viðbótar verði sett upp að vori þegar menn ganga til árlegra vorhreingernina í göngunum. Um leið og ‚vorljósin“ komast á sinn stað lýkur þessu verkefni sem hófst með fjölgun ljósa yfir akbrautum í brekkunni nyrst í göngunum. Þá birti verulega á þeim kafla og vorið 2009 verður bjartara yfir í endilöngum göngunum, vegfarendum til ánægju og enn meira öryggis í umferðinni.



