Alls fóru yfir 1.822.000 bílar um Hvalfjarðargöng á nýliðnu rekstrarári Spalar, frá októberbyrjun 2005 til septemberloka 2006, sem er 12% fjölgun frá fyrra ári. Þetta svarar til þess að rétt liðlega 5.000 bílar hafi farið um göngin á sólarhring.
Alls fóru yfir 1.822.000 bílar um Hvalfjarðargöng á nýliðnu rekstrarári Spalar, frá októberbyrjun 2005 til septemberloka 2006, sem er 12% fjölgun frá fyrra ári. Þetta svarar til þess að rétt liðlega 5.000 bílar hafi farið um göngin á sólarhring.
Þetta kom fram á aðalfundi Spalar á Akranesi í dag. Við blasir að umferðin haldi áfram að aukast og verði yfir 5.100 bílar á sólarhring á almanaksárinu 2006. Rekstrartekjur Spalar jukust um á nýliðnu rekstrarári og skuldir lækkuðu um 3% frá fyrra ári. Félagið skuldar núna tæplega 4,7 milljarða króna. Sé miðað við fast verðlag kemur í ljós að tekjurnar hafa lækkað um tæplega 13% frá fyrsta heila rekstrarári ganganna (1998-1999) og meðalgjald á hvern bíl hefur lækkað um nær 50% að raunvirði á þessum tíma! Veggjaldið hefur þannig stöðugt farið lækkandi, bæði að krónutölu og raungildi, frá því göngin voru tekin í notkun. Stöðug umferðaraukning hefur hins vegar skilað því að allir geta unað glaðir við sitt: Spölur fær tekjur til að standa undir lánum og rekstri og vegfarendur borga minna og minna fyrir að aka undir Hvalfjörð.
Alls fóru yfir 1.822.000 bílar um Hvalfjarðargöng á nýliðnu rekstrarári Spalar, frá októberbyrjun 2005 til septemberloka 2006, sem er 12% fjölgun frá fyrra ári. Þetta svarar til þess að rétt liðlega 5.000 bílar hafi farið um göngin á sólarhring.Þetta kom fram á aðalfundi Spalar á Akranesi í dag. Við blasir að umferðin haldi áfram að aukast og verði yfir 5.100 bílar á sólarhring á almanaksárinu 2006. Rekstrartekjur Spalar jukust um á nýliðnu rekstrarári og skuldir lækkuðu um 3% frá fyrra ári. Félagið skuldar núna tæplega 4,7 milljarða króna. Sé miðað við fast verðlag kemur í ljós að tekjurnar hafa lækkað um tæplega 13% frá fyrsta heila rekstrarári ganganna (1998-1999) og meðalgjald á hvern bíl hefur lækkað um nær 50% að raunvirði á þessum tíma! Veggjaldið hefur þannig stöðugt farið lækkandi, bæði að krónutölu og raungildi, frá því göngin voru tekin í notkun. Stöðug umferðaraukning hefur hins vegar skilað því að allir geta unað glaðir við sitt: Spölur fær tekjur til að standa undir lánum og rekstri og vegfarendur borga minna og minna fyrir að aka undir Hvalfjörð.



