Spölur - Hvalfjarðargöng

Forsíða Fréttir Fréttir 2004 Bíll á vegg, hjólhýsi á hliðina

Bíll á vegg, hjólhýsi á hliðina

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

Hollensk hjón á hringferð um landið voru í bílnum og má teljast mildi að þau hafi sloppið úr þessu óhappi án þess að skaðast. Þau voru á suðurleið, komin niður undir Guðlaug neðst í Hvalfjarðargöngum þegar eitthvað fór úrskeiðis sem ekki er vitað nánar um þegar þetta er skrifað. Verksummerki benda til þess að bíllinn hafi rásað nokkuð á akbrautinni áður en hann lenti á gangaveggnum og hjólhýsið valt. Bíllinn er trúlega ónýtur, eins og sjá má á meðfylgjandi myndum, og hjólhýsið er sömuleiðis illa farið. Málið er í rannsókn hjá lögreglu.