Spölur styrkir Hvalfjarðagangasafnið að Görðum
Fulltrúar Spalar afhentu Hvalfjarðargangasafninu að Görðum á Akranesi hálfa milljón króna fyrir helgina og vildu þannig í verki heiðra merkilega og menningarsögulega starfsemi safnsins. Gísli Gíslason, Gylfi Þórðarson og Marínó Tryggvason frá Speli heimsóttu Þorstein Þorleifsson, rekstraraðila safnsins og afhentu honum ávísun á gjöfina góðu. Þorsteinn stendur að Steinasafni Íslands að Görðum og Hvalfjarðargangasafnið er reyndar deild í því. Safnið að Görðum er heimsóknar virði og vel svo það, hvort heldur menn hafa áhuga á Hvalfjarðargöngum eða náttúruríki Íslands. Í vor verður svo væntanlega opnað þarna íþróttasafn og síðar safn Landmælinga Íslands..