Spölur - Hvalfjarðargöng

Forsíða Fréttir Fréttir 1996 2.050 metrum lokið

2.050 metrum lokið

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út
Lokið var við að sprengja alls 2.050 metra í Hvalfjarðargöngum þegar jólaleyfi hófst á vinnusvæðinu 20. desember. Þar með hefur verið sprengd vegalengd sem svarar til um 37% af göngunum undir fjörðinn. Lokið er við um 1.070 metra að sunnanverðu, en 980 að norðan. Verkið gengur mjög vel, eins og fram kemur annars staðar á fréttasíðum Hvalfjarðarvefsins.